27.01.2012 20:53:17 / 3fylkir
Sælir
Leikur á morgun gegn Leikni. Mæting er kl 11:20 upp í Egilshöll. Leikurinn hefst stundvíslega kl 12:00 en þeir sem eiga að mæta eru yngra árið og þeir strákar af eldra ári sem ekki spiluðu í futsalinu um daginn.
Næsta æfing er svo á sunnudaginn kl 14:00 á Fylkisvelli hjá öllum.
sjáumst hressir
kv
Nonni og Sölvi
»
27.01.2012 15:45:30 / 3fylkir
Sælir
Hot fuzz í dag á Fylkisvelli klukkan 19:00
Endilega mæta.
Kveðja Nonni & Sölvi
»
26.01.2012 16:13:44 / 3fylkir
Það verður frí í dag vegna þess að völlurinn er ansi slakur og ef hann verður látinn vera í dag er mjög líklegt að hann verði góður á morgun. Við höfðum hugsað okkur að hafa fund en tengibyggingin er uppbókuð svo að það verður að bíða betri tíma.
Þannig að það verður æfing á morgun pottþétt, ef völlurinn verður góður, þá verður æfing þar á eðlilegum tíma. Ef hann verður ekki orðinn góður þá verður æfing í Selásskóla klukkan 18:00 þar sem við tökum 3 á 3 og fleira skemmtilegt og reynum að gera gott úr þessu.
Við látum ykkur vita á morgun hvað verður.
Kveðja.
Nonni og Sölvi
»
19.01.2012 00:44:52 / 3fylkir
Sælir
Æfing á morgun kl 19:00 á Fylkisvelli. Mætum kl 18:45 í upphitun þar sem að við fáum bara klukkutíma á vellinum vegna leiks hjá 2.flokki kvenna. Flott mæting og æfing á þriðjudaginn.
Keep up the good work guys
kv
Nonni og Sölvi
»
16.01.2012 21:13:57 / 3fylkir
Sælir
Æfing á morgun kl 20:00 á Fylkisvelli.
sjáumst hressir
kv
Nonni og Sölvi
»
15.01.2012 22:24:17 / 3fylkir
Sælir kappar
Mæting á morgun kl 17:30 niður í Árbæjarlaug. Hafa sem sagt með ykkur sunddót og pening til að borga ofan í til öryggis ( er ekki viss um að geta reddað okkur frítt ofan í )
Það þarf ekki að taka með sér hlaupaskó að þessu sinni.
kv
Nonni og Sölvi
»
15.01.2012 03:50:20 / 3fylkir
Sælir
Það er æfing á morgun (sunnudag) kl 14:00 á Fylkisvelli
sjáumst ferskir
kv
Nonni og Sölvi
»
12.01.2012 21:04:16 / 3fylkir
Sælir
Hrikalegt Hotföss á morgun kl 19:00
Mætum vel gíraðir og græjaðir
kv
Nonni og Sölvi
»
10.01.2012 15:42:22 / 3fylkir
Sælir
Vegna veðurs og vallaraðstæðna verður ekki æfing í kvöld.
Eldra árs strákar munið að minna foreldra ykkar á foreldrafundinn í tengibyggingunni á miðvikudagskvöldið klukkan 20:00.
Kveðja.
»
08.01.2012 02:25:41 / 3fylkir
Sælir
Það er æfing á morgun ( sunnudag ) kl 14:00 á Fylkisvelli.
Einnig vil ég minna foreldra eldra árs stráka að það er foreldrafundur næstkomandi miðvikudag kl 20:00 í tengibyggingu Fylkishallar. Aðalmál á dagskrá er hugsanleg utanlandsferð eldra árs í sumar.
kv
Nonni og Sölvi
»
06.01.2012 17:43:03 / 3fylkir
Sælir kappar
Hotföss í kvöld kl 19:00
»
05.01.2012 17:39:16 / 3fylkir
Sælir
Æfing í kvöld kl 19:00 á Fylkisvelli
sjáumst hressir
kv
Nonni og Sölvi
»
21.12.2011 22:46:43 / 3fylkir
Sælir kappar
Frá og með deginum í dag eru 12 dagar í næstu æfing. Við þjálfararnir viljum að þið hreyfið ykkur eitthvað í þessu fríi og þá helst alveg annan hvern dag ( má vera meira en ekki minna ). Við erum að tala um svona 5-6 daga í hreyfingu.
Það er hægt að taka margvíslega hreyfingu eins og hlaup, ræktin, fara sjálfir niður á völl og æfa ykkur, sund ( þá ekki bara að fara í pottinn

) og það sem ykkur dettur í hug sem felur í sér hreyfingu.
Annars hafið það gott yfir hátíðarnar
sjáumst ferksir á nýjur ári
kveðja
Nonni og Sölvi
»
16.12.2011 22:45:06 / 3fylkir
Sælir strákar
Sunnudagur kl 14:00 æfing Fylkisvöllur
Þriðjudagur kl 20:00 æfing Fylkisvöllur
Þriðjudagsæfingin er síðasta æfing fyrir jólafrí en við byrjum svo aftur 3.janúar. Verð að segja að við erum orðnir mjög langþreyttir á lélegri mætingu. Við settum okkur markmið þegar við byrjuðum í október þar sem allir voru sammála því sem sett var upp. Með þessu áframhaldi er ekki fræðilegur möguleiki fyrir okkur að ná þessum markmiðum og finnst okkur þjálfurum það mjög miður hvernig málin eru og hafa þróast. Það er nokkuð ljóst að í byrjun janúar munum við halda fund og fara betur yfir málin.
Tökum síðustu tvær æfingarnar fyrir jól með trukki
kv
Nonni og Sölvi
»
15.12.2011 22:00:44 / 3fylkir
Sælir
Æfing á föstudaginn klukkan 19:00.
Hot föss og bullandi fjör, reyna að keyra upp almennilega mætingu.
Kveðja.
Nonni & Sölvi
»
Síður:
1 2 3 ...
84